Það er ekki erfitt að hætta…
…þegar þú hefur rétta verkfærið.
Margir hætta með dáleiðslu eftir eitt skipti…
..ÁN þess að þyngjast í leiðinni

Vissir þú að:

Þú getur hætt að reykja með dáleiðslu?
Rannsóknir sýna að þeir sem nota dáleiðslu til að hætta eru 90,6% líklegri til að vera ennþá við stjórn 3 árum seinna þegar kemur að því að reykja

Það er mögulegt að hætta með viljastyrk en dáleiðsla virkar hraðar og auðveldar
Með því að nota viljastyrkinn okkar getum við valdið breytingum en það getur tekið langan tíma og ef við erum ekki alltaf að gera meðvitaðar ákvarðanir getur gamall vani komið inn. Kannski kemur eitthvað uppá sem verður til þess að þú gleymir að fylgjast með og áður en þú veist af ertu komin með sígarettu upp í munninn og búin að kveikja í. Með dáleiðslu förum við í undirvitundina og breytum þessu ósjálfráða viðbragði þannig að þú þurfir aldrei að hafa fyrir því að fylgjast meðvitað með

Það er ekki verið að taka stjórnina frá þér
Að sjálfsögðu Að sjálfsögðu getur eitthvað komið fyrir hjá þér þannig að þú kýst að byrja aftur að reykja eftir að hafa hætt. Þú hefur algjöra stjórn á því hvað þú gerir. Ég get ekki látið þig gera það sem þú vilt ekki en ég get látið þig gera það sem þú vilt. Mitt hlutverk er aðeins að hjálpa þér að gera það sem þú hefur valið að gera.
Rannsókn eftir rannsókn eftir rannsókn sýnir að fyrir flesta er dáleiðsla eitt besta verkfærið til að hætta að reykja og haldast reyklaus.
Hér eru niðurstöður úr nokkrum rannsóknum:
90,6% árangur
39 af 43 sögðust hafa haldið sig frá tóbaki í eftirfylgni sem stóð frá 6 mánuðum upp í þrjú ár eftir meðferðina. Þetta er um 90.6% árangur með dáleiðslu.
University of Washington School of Medicine, Depts. of Anesthesiology and Rehabilitation Medicine, Int J Clin Exp Hypn. 2001 Jul;49(3):257-66. Barber J.
87% sögðust halda sig frá tóbaki eftir dáleiðslu
Rannsókn á 93 karlkyns og 93 kvenkyns þáttakendum þar sem rannsakað var að hætta með dáleiðslu. Eftir þriggja mánaða eftirfylgni reyndust 86% karlkyns þáttakendur og 87% kvenkyns þáttakendur ennþá vera reyklaus
Performance by gender in a stop-smoking program combining hypnosis and aversion. Johnson DL, Karkut RT. Adkar Associates, Inc., Bloomington, Indiana. Psychol Rep. 1994 Oct;75(2):851-7. PMID: 7862796 [PubMed – indexed for MEDLINE]
81% sögðust hættir að reykja eftir dáleiðslu
Þrjátíu einstaklingar sem reyktu voru sendir af sínum lækni í rannsókn. Eftir fyrstu ráðgjöf komu tuttugu aftur og létu dáleiða sig til að hætta að reykja. Eftir meðferðina sögðust 81% hættir og eftir 12 mánuði sögðust 41% ennþá halda sig frá tóbaki.
Texas A&M University, System Health Science Center, College of Medicine, College Station, TX USA. Int J Clin Exp Hypn. 2004 Jan;52(1):73-81. Clinical hypnosis for smoking cessation: preliminary results of a three-session intervention. Elkins GR, Rajab MH.
Sjúklingar sem notuðu dáleiðslu tvöfalt líklegri til að haldast reyklausir eftir 2 ár
Rannsókn á 71 einstaklingi sem reyktu sýndi að eftir tveggja ára eftirfylgni væru þeir sem hættu með aðstoð dáleiðslu tvöfalt líklegri til að haldast reyklausir heldur en þeir sem hættu af sjálfsdáðum.
Guided health imagery for smoking cessation and long-term abstinence. Wynd, CA. Journal of Nursing Scholarship, 2005; 37:3, pages 245-250.
Dáleiðsla áhrifaríkari en lyf til að hætta að reykja
Hópdáleiðsla, metin sem ekki eins áhrifarík aðferð (22% árangur) og einstaklings dáleiðsla, reyndist samt vera áhrifaríkari en lyfjameðferð við að hætta að reykja.
Ohio State University, College of Nursing, Columbus, OH 43210, USA Descriptive outcomes of the American Lung Association of Ohio hypnotherapy smoking cessation program. Ahijevych K, Yerardi R, Nedilsky N.
Dáleiðsla: 3 sinnum áhrifaríkari en plástrar og 15 sinnum áhrifaríkari en viljastyrkur
Dáleiðsla er öflugasta leiðin til að hætta að reykja, samkvæmt stærsta vísindalega samanburði allra tíma á því að brjóta vana. Greining á yfir 600 rannsóknum á 72 þúsund manns frá Ameríku og Evrópu þar sem skoðaður var munur á aðferðum við að hætta. Að meðaltali var dáleiðsla meira en þrisvar sinnum öflugri en að skipta út nikotíni [með plástrum eða öðrum nikotínvörum] og fimmtán sinnum öflugri heldur en að reyna að hætta með viljastyrknum einum saman
University of Iowa, Journal of Applied Psychology, How One in Five Give Up Smoking. October 1992. (Also New Scientist, October 10, 1992.) Studies on the Effectiveness of Hypnosis for Smoking Cessation. (2009, April 8).
